JÖKULBRIM
Smíðaverktaki & ráðgjöf
Verktaka á þínum forsendum. Við komum á staðinn, metum verkið og ráðleggjum. Síðan færðu skýrt tilboð – án skuldbindinga. Fagleg verktaka frá A–Ö.
Nýsmíði
Parketlögn
Innréttingar
Pallasmíði
Eldhús/baðherb.
Endurbætur viðgerðir og nýsmíði
Við græjum smíðina – stóra og smáa! Hvort sem það eru sérsniðnar lausnir heima, endurbætur, viðgerðir eða nýsmíði, mætum við með vandvirkni og brosi. Smáatriðin skipta máli og verkið klárast á réttum tíma. Sendu okkur línu – fáðu ráð og sanngjarnt tilboð.
Smiðurinn
Með áratuga reynslu í byggingariðnaði tek ég að mér verkefni frá fyrstu hugmynd að tilbúinni framkvæmd. Starfið mitt hefur spannað steypu- og mótasmíði, vandaðar viðgerðir og nýsmíði fyrir heimili og fyrirtæki. Ég legg mikla áherslu á gæði, öryggi og skýr samskipti – þannig fá viðskiptavinir mínir vönduð vinnubrögð og góða upplifun frá upphafi til enda.
